www.njalli.com
Leitarbox

17.09.2008 12:55:27 / josafat

Færa sig... enn og aftur...

Jæja, mér sýnist á öllu að ég neyðist til að hætta með njallotkar.njalli.com. Óhagstætt gengi krónurnar er bara hreinlega að ganga frá mér hvað þetta varðar. Mér fannst allt í lagi að borga 5000 kall á ári fyrir að vera með töff lén. Þegar krónan fór að lækka gagnvart dollar fór þetta að vera aðeins verra. Núna er árgjaldið komið upp í rúman tíuþúsund kall. Þá er þetta bara kjánalegt. Held þó að lénið mitt muni halda sér í einhvern tíma. Á eftir að koma í ljós.

Annars er það bara: http://njallotkar.blog.is


Sjibbí!


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 00:15:11 / josafat

Komdu aftur Stefán Guðnason

Stefán Guðnason við á blog.central.is viljum endilega fá þig aftur til skrifta hér hjá okkur enda var síðan geysivinsæl. Við höfum fylgst með þér gera misheppnaðar tilraunir á öðrum svæðum og viljum fá þig aftur.

Þú ert án efa hæfileikaríkur penni sem auglýsir kerfið okkar mjög vel.

Bestu kveðjur, Blog.central.is


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 03:27:57 / josafat

Ahhhh nostalgía...

Gaman að skrifa hérna inn aftur. Ætli það gerist ekki aftur að allt eyðist? Ég veit það ekki....
Jæja alla veganna nýja síðan mín er sumsé á slóðinni http://njallotkar.njalli.com

Sjitt hvað mikið er búið að breytast frá því að ég var á þessum stað. Skrítið að koma aftur hingað inn. Svolítið eins og að koma aftur að húsinu sem maður ólst upp í....

Gott og vel...

SJIBBÍ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.09.2005 13:26:31 / josafat

Fluttur :'(

Það er með hrikalega miklum trega og sorg sem ég neyðist til að tilkynna það að ég hef flutt mig um set.
Nú er ég alkominn á http://www.123.is/njallotkar

Eina ástæðan fyrir því að ég verð ekki lengur hér er sú að ég get ekki læst einstaka færslum en það er því miður eitthvað sem ég verð að gera.

Ég þakka blog.central fyrir ákaflega skemmtilegt tímabil.

"I don't believe in endings. I only believe in new beginnings."
- Bruce Dickinson

Snökt, snökt og snýt!

Sjibbí!


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.09.2005 01:51:23 / josafat

Ný síða

Jæja, búinn að opna nýja síðu. Nennti ekki að bíða eftir því að fá svar frá blog.central gaurunum þannig að ég fór á 123.is og opnaði nýja síðu þar. Kæmi mér ekki á óvart þó að ég flytti mig alveg yfir þangað. Mjög þægilegt og flott kerfi þar. En allavegana til að byrja með mun þetta vera sú síða þar sem að óþroskuðu og óritskoðuðu skrifin mín verða skrifuð. Að vísu verður sú síða ekki uppfærð nánast daglega eins og þessi síða en ef ég flyt mig alveg yfir þá verður kannski kippur þar á.
En allavega slóðin er http://www.123.is/njallotkar
Ef þið viljið aðgang þá er e-mailið mitt: njallotkar@simnet.is

Sjibbí!

» 61 hafa sagt sína skoðun

25.09.2005 00:22:42 / josafat

LOKSINS!!!

Eftir 17 tíma þrotlausa vinnu hefur mér loksins, LOKSINS tekist að klára spider solitaire í erfiðasta!!! Og já Svenni..... án þess að svindla!

Þetta er ekkert svindl! Þetta er gert til að láta nota það!

Sjibbí!


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.09.2005 13:42:25 / josafat

Miklar breytingar!

Jæja, ég hef nú ekki verið duglegur að skrifa hérna inn síðustu daga. Ástæða fyrir því er að ég hef verið að velta því alvarlega fyrir mér að gjörbreyta síðunni. Það er engin launung á því að mikið sem ég skrifa er að mestu bull. Oft á tíðum er þetta gríðarlega gróft bull þar sem ég er að teygja sannleikann hrottalega. Eftir að ég komst að því að mikið magn af ungum lesendum eru farnir að lesa þessa ´siðu hef ég ákvaðið þann möguleika að opna aðra síðu, óritskoðaða og mun grófari. Nú er ég að vinna í því ásamt öðrum góðum manni að búa til slíkt og mun þá vera hægt að sækja um aðgang að síðunni með auðveldum hætti (vonandi)

Einungis þeir sem gefa upp réttan aldur fá aðgang. Ég er eiginlega hundfúll að þurfa að gera þetta en því miður þá er þetta raunin. Ég er í þannig aðstöðu að ég get því miður ekki verið að skrifa um allt sem gerist í kringum mig þegar þessi ungu augu lesa þetta dags daglega.

Ég veit ekki hvenær þessi breyting verður en vonandi verður það sem fyrst.

Kveðja Stefán

Sorgmætt Sjibbí!


» 80 hafa sagt sína skoðun

22.09.2005 20:19:22 / josafat

Ég bara verð!!

Shitturinn titturinn. Ég var á camerunni þegar Jonni fór upp á svið í VMA. Þetta er eiginlega of fyndið! Þar sem ég get ekki sýnt myndbandið þá er þó hægt að hugga sig við þessar myndir:

http://www.thorduna.is/?category=6&action=detail&item=13

Ahh of mikil snild.

Sjibbí!


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.09.2005 21:39:48 / josafat

KA-ÞÓR

Jæja, var að koma af KA-ÞÓR. Helvíti fínn leikur. KA vann frekar tæpan sigur þó. Hefði alveg mátt vera öruggari en það er bara eins og það er. Þórsarar skörtuðu nýjum markmanni, veit ekki hvað hann heitir almennilega þannig að ég hef kosið að kalla hann Gorgeous (But he’s gorgeous!!!)

Leikurinn var ekki fagur og mátti sjá að þetta var nágrannaslagur af bestu gerð. Mikið um hrindingar og högg. Þó þótti mér skemmtilegast að sjá hvað lyftingarnar í sumar hjá okkur KA mönnum eru farnar að skila sér vel inn á völlinn enda sá maður Óla Sigurgeirs og fleiri "litla" menn henda Rúnari Sigtryggs til og frá þrátt fyrir að Rúnar sé tröll að vexti. Einkennilegt hvað maðurinn flaug alltaf...hmmmm...

 

Var með bróður mínum á leiknum.... Mögnuð sum kommentin hans.... Brot af því besta hér að neðan:

"Þetta er ekkert helvítis nautaat!!"

"Viltu fá mömmu þína??!??"

"Ef þetta eru ekki tvær mínútur.....þá kanntu ekki að telja upp að tveimur!!"

 

Ahh hann er snillingur. Ekki að kvarta yfir honum.

 

Ætla síðan bara að benda á auglýsinguna hérna að neðan...

 

 

 

 

Go Tanni tjokkó!!!! Eða er kannski kominn tími til að breyta nikkinu hans í Joe Boxer?

 

Sjibbí!


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.09.2005 10:16:41 / josafat

Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott!

Held að ég hafi gert þennan titil réttan. Gildir einu.
Var á æfingu í gær, eins og oft áður. Bjössi the snake sendi mig að finna tennisbolta þannig að hann gæti tekið mig í einhverja viðurstyggilega markmannsæfingu. Fór að pæla í því hvort að þetta væri ekki eins og að krossinn sem átti að negla krist upp á hefði týnst og hann hefði verið sendur að leita að honum. Var ekki að fíla þetta.

 

Hálsbólgan er ekkert að fara og alla morgna er röddin mín eins og röddin í svona radda simulator sem notaður er fyrir fólk sem er búið að missa röddina sökum reykinga eða einhvers annars. Óþolandi.

 

Tók eftir því í gærkvöldi að ég bý í draugalegri íbúð. Skíthræddur við að fara á klóstið að kvöldi til. Suddalega smeykur. Furðuleg hljóð og skrítnir hlutir sjást út undan manni. Hef í hyggju að hringja í ghostbusters.

 

Vaknaði í morgun ekki með neina sæng og glugginn opinn. Gamlir vinir, grýlukertin á eistunum á mér mættu á svæðið. Ég grét þegar ég kroppaði þau af. Chewbakka þarna niðri er orðinn að tíbeskum munka haus. Slæmt mál.

 

Að lokum ætla ég að egja frá einum manni sem er með mér í tíma. Ég þekki hann ágætlega, hann æfir með mér handbolta og hefur leikið í auglýsingu. Við fyrstu sýn virðist þessi maður með öllum mjalla. Við nánari kynni afsannast það. Í dag mætti hann í tíma með gamla scout kassatösku og my pony pennaveski. Honum til varnar má benda á það að hann hefur aldrei tekið skólann á fullu en ætlar að byrja á því í háskóla. Þannig að hann byrjar á sex ára bekk.... Svona Billy Madison dæmi... Hresst!

 

Sjibbí!


» 82 hafa sagt sína skoðun

20.09.2005 12:05:08 / josafat

Morknun og rotnun.

Ég er ekki frá því að nú í augnablikinu er ég farinn að rotna. Rotna lifandi. Er ekki frá því að ég hafi einnig upplifað pínu morknun. Afhverju þessi vanlíðan? Jú því að ég er að gera eitthvað auðveldasta verkefni í heiminum. Á að endurskrifa einhvern enskan texta og gera úr honum útdrátt. Þetta er svaðalega létt verkefni sem þýðir það að ég er ekki að nenna að gera það. Heimskulegt? Ég veit.

Er að uppgvöta það betur og betur að ég er lagður í einelti á mínu eigin heimili. Sindri og Sveindís eru vond við mig. Veit ekki hvað ég gerði þeim. Hef ákveðið að kúka á koddann hans Sindra, hann byrjaði!

Sjibbí!


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.09.2005 23:05:04 / josafat

Slakt

Ákvað að bíða með að skella inn nýrri grein þar sem ég ákvað að hafa "alvarlega grein" síðast. Ástæðan fyrir því að ég ákvað að bíða er það að mig langaði til þess að fá miljón komment svona einu sinni við þessari alvarlegu grein. Skil þetta ekki... enginn vill vera vinur minn. Þ.e.a.s. gangast við því að vera vinur minn, hef því komist að þeirri rökréttu niðurstöðu að ég á enga vini.

Átti einstaklega slaka helgi. Ég var ekkert búinn með þetta bévítans verkefni sem ég átti eftir þannig að ég fékk að leika mér að því í frítíma mínum yfir helgina. Tók mér þó pásu til að horfa á Liverpool-Man Utd. Ákaflega leiðinlegur leikur, sé eftir þeim tíma. Hund fúll.

Komst líka að því í dag að það er fínasta tímaeyðsla að hringja í þjónustuver símans. Svona þegar maður hefur ekkert að gera. Getur alveg drepið tvo þrjá tíma svona í góðum fíling. Óþolandi. Hata þá svo mikið. Væri til í að fara og klippa á allar símalínur hjá símanum bara til þess að líða betur.

Sjibbí!


» 80 hafa sagt sína skoðun

16.09.2005 17:24:27 / josafat

Loksins!!

Jæja loksins er maður búinn að slútta þessu blaði sem er búið að éta upp nánast hverja einustu mínútu síðustu tvær vikur. Verð að segja að léttirinn er gríðarlegur. Afraksturinn mun sýna sig næsta miðvikudag en þá verður þessu blaði dreift inn í hvert einasta hús. Neita því ekki að það jaðrar við það að maður finni fyrir stolti að vera búinn að ljúka þessu af. Markir merkir menn eru teknir tali í þessu blaði. Við Gestur sáum um að taka viðtöl við helling af mannskap og tókst það bara bærilega. Hugmynd mín um að troða mér inn í hvert einasta viðtal var felld einróma á ritstjórnarfundi. Það merkilega er að ég er í ritstjórn ásamt Gest. Hvernig ég náði þessari hugmynd ekki í gegn er mér algjörlega hulin ráðgáta.

 

Núna í fyrsta skipti frá því að ég man eftir mér í þessum svokallaða "blogg heimi" ætla ég að tala um eitthvað virkilega tengt mér og eitthvað sem er á alvarlegum nótum. Þetta verður erfitt en ég ætla að reyna mitt besta.

Fékk að vita það fyrir nokkru að ég og klæne kútsen e.þ.s. (einnig þekktur sem, kemur í stað A.K.A) Andri Snær munum sjá um að gera menn úr fimmta flokki karla í handbolta. Sem verður algjör snild enda mikill snillingur þar á ferð. Að vísu finnst mér skelfilega svekkjandi að meira en helmingurinn af þessum strákum sem við erum voru í 6. flokki í fyrra og var sá flokkur lagður í rúst. Ástæðan fyrir því að þessi flokkur var lagður í rúst var sú að þeim var öllum lofað að þeir yrðu atvinnumenn í fótbolta, bara ef þeir einbeittu sér að fótbolta. Nei hættu nú alveg. Ég á fimmhundruðkall sem segir að flestir þeirra munu varla ná í meistaraflokkinn hjá KA. Afhverju er þessi helvítis samkeppni á milli deilda? Eina sem mun gerast er það að það kemur upp heil kynslóð af ónýtum íþróttamönnum. Þetta er ekkert bara að gerast á milli fótbolta og handbolta (þó svo að samkeppnin þar er hvað hörðust) þetta er að gerast í öllum íþróttagreinum. Það er með ólíkindum að einn fótboltaþjálfari sem verður ekki nefndur á nafn hér, komist upp með það að eyðileggja heilan árgang af frambærilegum íþróttamönnum bara til þess eins að hafa fleiri menn til að hafna sæti í liðinu hjá sér. Afhverju fá ekki krakkarnir bara að vera í sem flestum íþróttum þegar þeir eru ungir? Ég man ekki eftir neinum atvinnumanni í neinni íþrótt hérna heima sem ekki hefur sagst hafa æft helling af íþróttagreinum þegar hann var yngri. Eins og Balli nefndi hérna í kommentinu af síðustu færslu, þröngsýnin er svakaleg. Það er einbeitt sér að því að ná sem mestum fjölda, jafnvel þó svo að það eyðileggji aðrar deildir innan sama félags! Þetta er ekkert annað en borgarastyrjöld sem á sér stað innan félagsins. En mér er slétt sama, ég hef einsett mér það að ná þessum strákum aftur í handboltann. Þeir mega fyrir mér æfa fótbolta líka, því ég veit að það er ekkert nema gott fyrir þá.

Þar sem ég veit að nokkrir af þessum strákum lesa þessa síðu (hvernig þeir fengu slóðina er mér hulin ráðgáta) ætla ég að segja þetta. Æfingarnar verða skemmtilegar, krefjandi og umfram allt, metnaðarfullar. Ef það ólíklega gerist að eitthvert foreldrið rambi inn á þessa síðu, sendiði krakkana ykkar í fleiri íþróttagreinar, ekkert endilega handbolta, bara eitthvað. Ekki láta fótbolta mafíuna eyðileggja heilan árgang.

 

Sjibbí!


» 88 hafa sagt sína skoðun

15.09.2005 00:20:56 / josafat

Jú takk!

Þrátt fyrir mikið annríki varð ég hreinlega að setja inn slóð á pistil sem verið var að benda mér á! Heyr heyr! Ekkert annað.

http://starfsfolk.khi.is/vidar/grein1.htm

Sjibbí!


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.09.2005 01:04:47 / josafat

Einhver fjandi

Var rekinn í sturtu á æfingu í dag. Reif kjaft við þjálfarann, ekki vel liðið. Sendur í sturtu. Reyndar ekki, reif ekki kjaft við þjálfarann. Var samt sendur í sturtu, í góðu þó. En það er önnur og leiðinleg saga. Fannst bara fyndið að vera sendur í sturtu. Var fyrir sunnan um helgina. Hresst. Fengum allir bílaleigubíl til afnota. Helvíti ánægður alveg, sérstaklega þar sem að ég fékk Rav 4 jeppa. Mjög sáttur. 
Sáttleiki minn náði þó ekki lengra en til Reykjavíkur þar sem ég áttaði mig á því að hann fór á hálfum tanki frá keflavík til Reykjavíkur. Ég var brjálaður. Eyddi glás af peningum í bensín. Sem betur fer fæ ég það endurgreitt.
Þó er eitt sem að ber að hafa í huga, keypti bensín í Borganesi og síðan aftur í Blönduósi. Frá Blönduósi og til Akureyrar eyddi hann þremur lítrum. Afhverju? Því að ég tók over drivið af á Blönduósi. Þar með minnkaði bensíneyðslan um 450%. Svekkjandi.

Ætla síðan að enda þetta á því sem ég lofaði góð vini mínum Einari Loga fyrir nokkru. Ég lofaði honum að skrifa vel um örvhenta svona einu sinni. Örvhentir eru ágætis fólk upp til hópa. Nú er afi minn örvhentur og því verð ég að viðurkenna að hatur mitt á örvhentum á ekki alveg rétt á sér. Örvhentum er margt til lista lagt. Á því leikur enginn vafi.
Þeir geta borðað og skrifað með vistri hendinni án þess þó að klúðra því. Þegar þeir skrifa t.d. lítur það ekki út fyrir að hafa verið skrifað af tveggja ára krakka með crayol liti. Einnig verð ég bara að segja að það er krúttlega skerí að sjá örvhentann mann kasta bolta með vinstri.
Hana nú, þá er það klárt. Búið að uppfylla loforð mitt og verkjatöflurnar eru farnar að kikka inn.
Held það sé kominn tími á að skríða niður á gólf og leggjast til hvílu (einkahúmor)

Sjibbí!


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 33